Landsbankinn × HönnunarMars

Landsbankinn er styrktaraðili HönnunarMars, sem hefur það að markmiði að auka hróður íslenskrar hönnunar og kynna unga og upprennandi hönnuði fyrir landsmönnum.

Hero
Hero
•

grafísk hönnun

•

hugmyndavinna

•

hreyfigrafík

HönnunarMars er eitt helsta kynningarverkefni íslenskrar hönnunar og arkitektúrs. Landsbankinn hefur verið aðalstyrktaraðili hátíðarinnar frá 2023. Meginþema HönnunarMars 2025 var „Uppsprettan“ og vísar það í fatahönnuði framtíðarinnar og þeirra margvíslegu hönnunarverk.

Þar sem myndefnið var tekið upp í höfuðstöðvum Landsbankans við Reykjastræti, var tilvalið að leyfa merki HönnunarMars að eiga sjónrænt samtal við fagurlega steypta veggi byggingarinnar. Merkið ferðaðist eftir flötunum, tók á sig dýpt og áferð steypunnar og skapaði lifandi samspil við merki Landsbankans — sem óneitanlega kallar fram notalegar DVD-minningar.

Þórunnartún 2
105 Reykjavík

TVIST á Instagram
TVIST á Facebook

Hefur þú áhuga á samstarfi?

Við erum alltaf til í gott kaffispjall

©TVIST 2012 - 2025.

Allur réttur áskilinn